Spurt og svarað
Hér eru teknar saman spurningar og svör sem varða uppfærslu í nýja útgáfu skilagreina (JSON/REST 2.0). Síðan er uppfærð eftir því sem staða innleiðingar þróast.
Tækniforskriftir og þróunarleiðbeiningar fyrir nýju útgáfuna eru undir Tækniforskriftir. Skjölun miðlægrar vefþjónustu skilagrein.is er á api.skilagrein.is/api/docs.
Miðlægar þjónustur á skilagrein.is
Tekur skilagrein.is við skilagreinum?
Nei. Launakerfi senda skilagreinar beint til hvers innheimtuaðila. Á skilagrein.is er miðlæg skráning innheimtuaðila og uppgötvunarslóða þeirra, ásamt tækniforskriftum, svo launakerfi viti hvert á að senda og hvernig.
Get ég byrjað strax að nýta miðlægu þjónusturnar?
Já. Miðlægu þjónusturnar á api.skilagrein.is eru opnar og launakerfi geta strax byrjað að sækja þaðan miðlæga lista, til dæmis yfir innheimtuaðila og uppgötvunarslóðir þeirra.
Get ég sótt upplýsingar um innheimtuaðila sjálfvirkt?
Já. Upplýsingar um innheimtuaðila og uppgötvunarslóðir þeirra eru aðgengilegar með API-kalli í miðlæga skráningu, sjá Skilagrein API Documentation.
Hvernig fylgist ég með breytingum?
Nýjustu upplýsingar um innheimtuaðila má alltaf sækja í miðlægu skráninguna á api.skilagrein.is.
Tilkynningar eru einnig birtar á skilagrein.is/tilkynningar og á forsíðu skilagrein.is er hægt að skrá sig á póstlista.
Hver stendur að skilagrein.is?
Landssamtök lífeyrissjóða (LL) reka skilagrein.is og miðlæga skráningu grunnupplýsinga.
Tækniforskriftir eru þróaðar í samvinnu við lífeyrissjóði og aðra hagaðila. Uppfærsla skilagreina í nýja útgáfu (JSON/REST 2.0) er unnin að frumkvæði lífeyrissjóðanna.
Fyrirspurnir má senda á skilagrein@ll.is.
Launakerfi
Þarf ég að skrá launakerfið hjá LL eða hjá innheimtuaðilum?
Ekki þarf að skrá launakerfið hjá LL. Aðgangur að nýjum vefþjónustum fæst hjá hverjum innheimtuaðila fyrir sig. Í uppgötvunarslóð hans kemur fram tengiliður fyrir aðgang (credentialContact), og innheimtuaðilinn gefur út aðgangsupplýsingar (client_id og client_secret) til launakerfisins. Mælt er með auðkenningu með OAuth 2.0 (client credentials), en hver innheimtuaðili ákveður sína leið.
Þar sem innheimtuaðili krefst þess þurfa launakerfið eða launagreiðendur að vera auðkenndir notendur. Um það er sótt hjá viðkomandi innheimtuaðila, annað hvort á launagreiðendavef eða með því að hafa samband beint. Það sama á við um eldri XML-skil.
Nánar er fjallað um auðkenningu í þróunarleiðbeiningum.
Á launakerfið mitt að styðja bæði XML og JSON/REST?
Já, við mælum með að launakerfi styðji báðar leiðir. Uppfærslan er leidd af lífeyrissjóðunum og því má vænta þess að lífeyrissjóðirnir og þjónustuaðilar þeirra uppfæri á næstu mánuðum.
Stéttarfélög sem innheimta sjálf taka hins vegar einnig við XML-skeytum. LL hefur ekki stjórn á áformum þeirra, hvort og hvenær þau uppfæra eða hvort einhver þeirra kjósi að halda áfram að taka eingöngu við XML.
Vefþjónustur innheimtuaðila
Hvar sé ég hvaða innheimtuaðilar styðja JSON/REST?
Á síðunni Innheimtuaðilar sést hvaða innheimtuaðilar taka við skilagreinum samkvæmt nýju útgáfunni (JSON/REST 2.0). Þegar innheimtuaðili opnar fyrir móttöku er hann skráður þar ásamt uppgötvunarslóð (discovery endpoint), sem launakerfi nota til að finna vefþjónustur hans.
Hvenær opna innheimtuaðilar fyrir nýju útgáfuna?
Hver innheimtuaðili opnar fyrir móttöku þegar nýjar vefþjónustur eru tilbúnar, og þá er uppgötvunarslóð hans skráð á síðunni Innheimtuaðilar. Uppfærslan er leidd af lífeyrissjóðunum, sem eru meðal þeirra fyrstu til að setja upp nýju vefþjónusturnar. Nýjustu stöðu má alltaf sjá á listanum.
Get ég notað villuprófun hjá öllum innheimtuaðilum?
Ekki endilega. Hver innheimtuaðili ákveður hvort hann býður upp á villuprófun (/fund-payments/validation) og upplýsir um það í gegnum uppgötvunarslóðina sína. Með villuprófun getur launakerfið sannreynt skilagrein áður en hún er send. Launakerfi ættu því að lesa uppgötvunarslóðina og nýta villuprófun þar sem hún er í boði.
Er til sameiginlegt prófunarumhverfi?
Nei, við settum ekki upp miðlægt prófunarumhverfi fyrir þessa uppfærslu, því það er talið betra að prófanir fari fram beint hjá þeim innheimtuaðilum sem leiða breytinguna og þar með nær raunverulegri notkun.
Nokkrir innheimtuaðilar bjóða upp á eigin prófunarumhverfi sem þróunaraðilar geta nýtt sér. Hafið samband á skilagrein@ll.is og við vísum ykkur á tengiliði hjá þeim.
Aðgangsupplýsingar og upplýsingar um prófunargögn fást hjá viðkomandi innheimtuaðila.
Eldri XML-skil
Hvenær verður XML-þjónustan lögð niður?
Engin sameiginleg lokadagsetning verður ákveðin. Hver innheimtuaðili ákveður sjálfur hvenær hann hættir að taka við XML-skilum, og hann þarf að geta tekið við þeim á meðan launakerfin uppfæra sín megin. Sumir innheimtuaðilar standa auk þess utan hópsins sem leiðir uppfærsluna. Aðlögunartímabilið er því háð mörgum aðilum.
Á síðunni Innheimtuaðilar sést hverjir hafa opnað fyrir nýju útgáfuna.
Hvar finn ég forskrift og leiðbeiningar fyrir eldri XML-þjónustuna (útgáfu 1.0)?
Upprunalegar þróunarleiðbeiningar frá 2003 eru aðgengilegar á old.skilagrein.is, þar á meðal kynningarefni frá kynningarfundi 2003. Þar er að finna svör við flestum spurningum um virkni XML-þjónustunnar.
Hvernig prófa ég sendingar á XML-skilagreinum?
Hafðu samband við þann innheimtuaðila sem tekur við iðgjöldum flestra launþega í þínu kerfi og kannaðu hvort hann býður upp á prófanir á XML-skeytum.
Launagreiðendur
Hvernig leiðrétti ég skilagrein sem var send tvisvar eða með röngum upplýsingum?
LL og skilagrein.is sjá ekki um vinnslu einstakra skilagreina. Hver innheimtuaðili setur sjálfur reglur um leiðréttingar og endursendingar. Hafið samband beint við viðkomandi lífeyrissjóð eða innheimtuaðila. Upplýsingar um hvert á að snúa sér eru yfirleitt á vef hans undir síðu fyrir launagreiðendur.